Yamaha Ténéré 700 er búið 689cc 2-cylinder vél með skemmtilegu togi. Ténéré 700 hefur verið gríðar vinsælt undanfarin ár og komið vel út við erfiðar og krefjandi aðstæður, rally-akstur og lengri ferðir. Þetta er hjól sem tæklar auðveldlega akstur við erfiðar aðstæður í grófu umhverfi, en er líka mjög skemmtilegt á malbikuðum vegum.
Extreme útgáfan er með lengri (230/220mm) og stífari fjöðrun, one-piece Rally sæti, hærra frambretti, titanium standpedala o.fl Extreme hjólið er sem sagt aðeins torfærulegra hjól sem má bjóða aðeins grófari slóða/keyrslu en Standard hjólinu.
Stillanlegt ABS kerfi og TFT skjár með snjallsímatengingu.
Létt og sterkt stell
Rally framendi með 4-LED aðalljósi
Stillanlegtir 43mm framdemparar – 230mm
Stillanlegur afturdempari -220mm
ABS með 3 stillingum, (framan og aftan, bara aftan, slökkt)
21/18-tommu teina felgur og adventure dekk
Rally mælaborð og öflugt álstýri
5-tommu litaskjár TFT í mælaborði, hægt að tengja síma
LED ljós og USB tengi
Nettur tankur, 16 lítra