“Yamaha Motor The Kando* Creating Company”
Í meira en 60 ár hefur Yamaha Motor framleitt tæki sem skara fram úr á heimsvísu. Yamaha hefur alla tíð lagt mikla áherslu á nýsköpun og tækninýjungar og hefur um árabil verið í fararbroddi í þeim efnum. Markmið Yamaha er að framleiða hágæða tæki sem búa yfir einstakri tækni og auka lífsgæði viðskiptavinanna sinna.
Arctic Trucks hefur verið umboðsaðili fyrir Yamaha á Íslandi frá árinu 2009. Yamaha á Íslandi leitast við að bjóða fjölbreytt úrval tækja og vegna góðs sambands við Yamaha í Evrópu er afgreiðslutími á tækjum afar stuttur, jafnvel þótt viðkomandi tæki sé ekki til á lager. Sömuleiðis getum við boðið einstaklega stuttan afgreiðslutíma á varahlutum og rekum Yamaha þjónustuverkstæði.
Hjá Yamaha á Íslandi eru fjórir starfsmenn, sem allir búa yfir mikilli reynslu.