Yamaha MT-10 SP
Yamaha MT-10 hjólið er verulega spennandi og vel hannað mótorhjól. Öflugur 998cc CP4 fjórgengismótorinn er byggður á CP4 Yamaha YZF-R1 mótornum og sá öflugasti í Hyper-Naked línunni.
Einnig er Yamaha MT-10 SP fyrsta hjólið í heiminum sem er útbúið með háþróaðri rafstýrðri Öhlins fjöðrun. Ökumaður hefur val um sex mismunandi kerfi þannig að fjöðrunin stillir sig sjálfkrafa að aksturstíl ökumanns og umhverfisaðstæðum sem gefur ótrúlega tilfinningu og meira öryggi í akstri.
Þetta er verulega öflugt og skemmtilegt hjól!
5 ára þjónustutengd ábyrgð fylgir öllum götuhjólum yfir 250cc.
Eiginleikar:
- 4.2″ TFT mælaborð með Ride-Mode stillingum
- Títaníum pústkerfi
- Quick-Shift gírskiptir fyrir upp og niðurgírun á fullri gjöf
- 6-Axis IMU með öllum fáanlegum akstursstillingum
- Gen-2 Öhlins rafstýrð fjöðrun
- Vírvafðar bremsuslöngur
- Brembo Radial bremsudæla að framan
- 998cc CP4 EU5 fjórgengismótor
- APSG inngjöf með stillanlegum PWR-kerfum
- Cruise-Control og Speed-Limiter