Yamaha EF2200iS ferða rafstöð:
“Handhæg, öflug og hljóðlát rafstöð í ferðalagið”
EF2200iS ferðarafstöðin er einstaklega meðfærileg og hljóðlát. Það fer lítið fyrir henni og því er sérlega auðvelt að kippa henni með í ferðalagið. Að mörgu er að hyggja þegar rafstöð er valin og vert að kynna sér vel eiginleika hverrar rafstöðvar áður en ákvörðun er tekin. Ef þú ert að leita eftir vandaðri, hljóðlátri og áreiðanlegri rafstöð á er Yamaha með rafstöð fyrir þig.
Helstu eiginleikar þessarar stöðvar:
Loftkældur fjórgengismótor sem skilar 2,4 kW / 3.3ha / 4500 sn/min. Handræsibúnaður með sjálfvirkum afþjöppunarbúnaði). Getur gefið bæði 12V og 230V straum.
Yamaha rafstöðvar búa yfir mörgum eiginleikum umfram aðrar rafstöðvar. Inverter kerfið er ein af þeim nýjungum sem Yamaha hefur innleitt með sínum rafstöðvum.
Hvað er Inverter kerfi?
Inverter-kerfi jafnar spennumagnið (Volt) og tíðnina (Hz) sem jarðefna-knúinn rafall framleiðir af rafmagni (sinusbylgjum) til að koma í veg fyrir undir eða ofálag spennu. Þess vegna er Yamaha Inverter rafallinn kjörinn aflgjafi þegar viðkvæmur búnaður er tengdur við rafstöðina eins og rafeindatæki og örtölvur.
Betri stjórnun – Grænni orka
Inverter-kerfi Yamaha framleiðir riðstraum (Alternate Current) sem er stýrt rafrásarferli þekkt sem PWM (Púls breidd mótun). Fyrir vikið hafa sveiflur í ganghraða vélar ekki áhrif á spennu eða tíðni framleiðslunnar á rafmagni og að sama skapi dregur úr framleiðslu á útblæstri.
Fjölfasa rafall
Innleiðing fjölfasa rafala gera nútíma framleiðslu afkastameiri og skilvirkari, þar sem hátíðni sinusbylgjum (Hz) og 3 fasa riðstraum (AC) sem Inverter breytir í einfasa rafmagn. Afkastamiklu inverter rafalar frá Yamaha eru þar af leiðandi miklu léttari og samsettari að gerð en venjulegir rafknúnir rafalar af 2ja fasa gerð.
Hagkvæmni og nýting orkugjafa með Smart Throttle ™
Það hefur aldrei verið jafn auðvelt og hljóðlátt að ferðast um með Yamaha rafstöð. Vegna þess hannaði Yamaha framleiðandinn Smart Throttle ™, eiginleiki sem stillir ganghraðann sjálfvirkt með nákvæmum hætti við mismunandi álag í keyrslu. Smart Throttle ™ gerir rafstöðinni kleift að keyra hljóðlátlegar samhliða betri eldsneytisnýtingu, lengir endingu vélarinnar og notkunartíma á milli eldsneytisáfyllingar.
Háþróuð hljóðdempun
Framleiðsla á rafmagni með rafstöð var áður hávaðasöm. Þess vegna hannaði Yamaha Noise Block ™ sem er verkfræðileg hönnun á hljóðdempunarkerfi. Noise Block ™ tækni sem notar ýmis hljóð dempandi efni, einangrunarmót, soggreinahljóðdeyfi, glermottu einangrun, auk sérhannaðs hljóðdeyfis og kæliviftu til að framkalla nánast hljóðlausa notkun samhliða miklum afköstum og gæðum. Ennfremur er vegna þessarar hönnunar truflun vegna sendingar á útvarps og sjónvarpsbylgjum í lágmarki.
Minna en 2,5% röskun
Þetta þýðir að hægt er að nota Yamaha inverter rafstöðvar fyrir búnað sem krefst stöðugrar tíðni og spennu, sem skilgreind er sem hentug “sinusbylgja” fyrir myndritun og búnað með innbyggðum tölvuforritum, stýrikerfum auk örtölvu búnaðar (t.d. rafmagnstæki og skjávarpar).