Yamaha Viking EPS:
Viking EPS er léttur og meðfærilegur vinnuþjarkur sem er líka skemmtilegur í torfæruakstri. Öll hönnun á Viking EPS miðar að því að skapa hentugt og áreiðanlegt vinnutæki. Umgjörð ökumanns og farþega er hentug 3ja sæta útfærsla með sléttu gólfi sem gerir aðgengi frá báðum hliðum auðvelt fyrir alla. Viking EPS er einstaklega lipurt og þægilegt vinnutæki með góðri fjöðrun, góðri toggetu og hentugum palli með 272kg. burðargetu. Yamaha mótorar eru þekktir fyrir áreiðanleika og endingu. Í Viking EPS er 2ja strokka 686cc fjórgengismótor sem skilar miklum togkrafti.
Með Yamaha On-Command® drifkerfi er auðvelt að skipta með tökkum á milli 2WD/4WD/Diff lock..
Afar áreiðanlegt og nytsamlegt vinnutæki sem er mjög hentugt fyrir létt verk t.d. í ferðaþjónustu, golfvöllum og á sveitabýlum.