Við erum með sérfræðing frá Yamaha Motors í Evrópu hjá okkur í þessari viku. Hann er hér í heimsókn hjá YAMAHA á Íslandi til að veita viðskiptavinum sérfræðiráðgjöf varðandi utanborðsmótora.  En hann er sérfræðingur í bátum, utanborðsmótorum og tilheyrandi búnaði.

Á fimmtudaginn á milli kl. 13:00 og 17:00 ætlum við að taka móti áhugasömum og veita ráð um búnað og tæki og rétta uppsetningu á mótorum.

Það er mikils virði að hafa aðgang að svona sérfræðing og um að gera að nýta sér það. Við munum jafnframt bjóða upp á forkaupstilboð á stórum mótorum sem þarf að sérpanta.

Hægt verður að forpanta hjá okkur á tilboðsverði til 9 desember 2022.

Kynnið ykkur úrval utanborðsmótora hér.

 

Ef þessi tímasetning hentar ekki til að hitta ráðgjafa þá er mögulegt að bóka sérstaka tíma hjá okkur. Við getum komið í heimsókn eða öfugt. Sendið póst á info@yamaha.is