Pioner 12 Maxi plastbátur
Áreiðanlegur og öruggur nútímabátur
Nýi Pioner 12 Maxi plastbáturinn er nútímalegur og öruggur fjölnota bátur. Vönduð nútímahönnun og lögun á bátnum gefur honum einstaka siglingaeiginleika þar sem hann reysir sig hæfilega og klífur vatnsflötin afar vel sem gerir hverja siglingu ánægjulega og örugga.
Pioner er leiðandi fyrirtæki á heimsvísu þegar kemur að steyptum plastbátum og hefur lyft hönnun og gæðum á slíkum bátum í nýjar hæðir. Pioner 12 Maxi er hluti af þeirri byltingu. Báturinn er með tvöfaldri hulningu sem gerir hann afar öruggan. Dekkið er kyrfilega fest við hulninguna sem gerir bátinn afar sterkbyggðan og eins er hann afar endingargóður.
Pioner 12 Maxi tekur allt að 4 fullorðna sem geta látið fara vel um sig í þægilegum sætum um borð. Báturinn kemur með stýri sem gerir siglingar þægilegar og ljúfar. Háir borðstokkar gefa bátnum aukna getu í hærri öldum og hindra að þeir sem eru um borð vökni við siglingarnar.
Lögun og lengd á Pioner 12 Maxi gefur bátnum góða skriðeiginleika og auðveldar róður fyrir þá sem það kjósa.
Helstu eiginleikar:
- Þyngd: 160kg
- Lengd: 381cm
- Breidd: 165cm
- Fjöldi um borð: 4
- Hámarks afl mótors HP/KW: 15hp/11,2KW
- Lengd á skafti: Langt
- Litir í boði: Hvítur, dökkgrár, rauður, appelsínugulur.
- Stýri: Já
- Lengd á stjórnkapli fyrir stýri: 275cm
- Lengd á stjórnkapli fyrir inngjöf: 275cm
Mótor fyrir Pioner 12 Maxi Basic
Við mælum með YAMAHA utanborðsmótor á þennan bát:
- Fjórgengis, Yamaha F15C – 15hp fjórgengismótor.
- Tvígengis, Yamaha 15FMHL – 15hp tvígengismótor.
Verð miðast við grunnútgáfu af bátnum en myndir geta sýnt aukabúnað sem ekki er innifalinn í verði. Hafðu samband í síma 540-4980 eða info@yamaha.is og fáðu nánari upplýsingar.