2021 Yamaha YFZ450R:
Alvöru keppendur geta sagt þér hversu mikið Yamaha YFZ450R er í uppáhaldi hjá þeim. Hjólið er einstaklega kvikt og meðfærilegt með gríðarlega góða svörun við öllum hreyfingum keppandans. Snörp 450cc vélin hefur skilað þessu hjóli í allra fremstu röð. Margir telja að Yamaha hafi stungið af í þessum flokki hjóla.
“Race-bred assist” og “slipper clutch” gefa mun nákvæmari stjórnun á hjólinu í öllum beygjum sem skilar sér í stöðugt betri tíma í braut. Vélin hefur verið þróuð með keppni í huga og er með sérstaklega gott viðbragð við inngjöf og skilar háum snúningi hratt þegar á þarf að halda til að sigra.
Hnitmiðuð hönnun á hjólinu gefur keppendum þægilegt pláss til að beita líkamanum fljótt og örugglega til að halda fullkomnum þyngdarpunktum á hárréttum augnablikum í beygjum og þegar allt er sett í botn. Til að setja punktinn yfir i-ið þá skilar “piggyback” fjöðrunin hárbeittri stjórnun á hjólinu.
Helsti búnaður:
- Lipur keppnis-inngjöf
- Fyrsta hjól í sínum flokki með “slipper” kúplingu
- Léttir “piggyback” demparar hámarka tilfinningu við akstur
- Vélin, hlaðin orku og sprengikrafti, nýtur sín frábærlega á keppnisbrautunum
- Fjöðrun sem er í fullkomnu jafnvægi við afl og byggingu hjólsins
- CAM hönnun skilar hrikalegri snerpu
- 32-bit innspýting sem svarar samstundis
- Heilsteypt álgrind
- Steyptur álarmur með “Piggyback” afturdempara
- Tvöfaldir diskar að framan
- Sérhannaðar festingar til að losa “body” hluti fljótt og örugglega
- Einstaklega gott rými fyrir ökumann til að beita sér við aksturinn.